Vernd svæðislýsinga smárása í hálfleiðurum

174. fundur
Föstudaginn 07. maí 1993, kl. 11:33:07 (8168)


     Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
    Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að hafa langt mál í þessari umræðu. Þetta er út af fyrir sig samstöðumál. En ég hlýt að gera hér örfáar athugasemdir við ræðu hv. síðasta ræðumanns. Það er alveg ljóst að hér er verið að ,,súmmera`` og taka saman í eitt árangur hæstv. iðnrh. eftir sex ára starf í því ráðuneyti. Þessu máli ber samkvæmt því að sýna tilhlýðilega virðingu og sjá til þess að það gangi hér hratt og örugglega í gegnum þingið.