Afbrigði um dagskrármál

174. fundur
Föstudaginn 07. maí 1993, kl. 11:40:12 (8169)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Þannig háttar til um 32. mál á dagskránni, sem er 594. mál þingsins, Rannsóknir á botndýrum við Ísland, að það er of seint fram komið og þarf því að leita afbrigða um að það megi koma fyrir og á dagskrá. Verður þeirra afbrigða nú leitað.