Jóna Valgerður Kristjánsdóttir
:
Virðulegi forseti. Hér er eingöngu um það að ræða að samþykkja ríkisreikning eins og lög kveða á um að skuli gert. Ég hef skrifað undir hann með fyrirvara og vil gera grein fyrir því að það er enginn ágreiningur um uppsetningu reikningsins eða einstaka liði. Ég tel því að hann sé bókhaldslega réttur og samþykki hann á þeim forsendum.