Afgreiðsla frumvarps um framleiðslu og sölu á búvörum

175. fundur
Föstudaginn 07. maí 1993, kl. 13:29:44 (8177)

     Egill Jónsson :
    Virðulegi forseti. Ég er þakklátur forseta fyrir að hafa breytt röðun mála landbn. Alþingis þannig að fyrst komi að máli nr. 504 sem er langþýðingarmesta málið. Hins vegar gaf forsetinn fyrirheit um að leitast yrði við að skýra frá því hvenær þetta mál kæmi hér á dagskrá og án þess að ég ætli að sýna virðulegum forseta óbilgirni, þá var sú ósk mín af þeirri stærðargráðu að það hefði vel mátt sinna henni þannig að það lægi fyrir hvenær þetta mál kæmi hér til umræðu.