Afgreiðsla frumvarps um framleiðslu og sölu á búvörum

175. fundur
Föstudaginn 07. maí 1993, kl. 13:33:52 (8180)

     Steingrímur J. Sigfússon :
    Hæstv. forseti. Ég held að þessi umræða hafi skýrt málið og þá er ekki annað eftir en að fá það alveg á hreint að svarið við fyrirspurn hv. 1. þm. Norðurl. v. sé já, að það samkomulag standi að afgreiða öll þau mál sem á dagskránni eru. Og um leið og forseti fullvissar okkur um að svo verði gert, þá skal ég ekki hafa frekari orð um þetta og uni því að sjálfsögðu að mál verði tekin fyrir í þeirri röð sem þau eru hér á dagskránni eða forseti að öðru leyti kýs að hafa þau svo fremi sem tryggt sé að öll þessi mál verði endanlega afgreidd.