Vegáætlun 1993--1996

175. fundur
Föstudaginn 07. maí 1993, kl. 15:28:41 (8203)

     Sturla Böðvarsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Um þessa ræðu vil ég segja og vekja á því athygli að á Vestfjörðum er um að ræða geysilega miklar framkvæmdir í vegagerð um þessar mundir. Ég fagna því og vænti þess að það eigi einnig við um hv. þm. Vestfjarða að þeir fagni þeim stóru og merku áföngum sem við munum ná, m.a. á þessu ári í vegagerð á Vestfjörðum.