Atvinnuleysistryggingar

175. fundur
Föstudaginn 07. maí 1993, kl. 21:21:08 (8263)

     Frsm. minni hluta heilbr.- og trn. (Finnur Ingólfsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hv. þm. Sigbjörn Gunnarsson, formaður heilbr.- og trn., gerði glögga grein fyrir tillögum meiri hlutans hér áðan. Ég hlustaði gaumgæfilega á það og það var allt saman rétt og satt sem þar kom fram. Hins vegar er það sem þingmaðurinn er að segja hér nú, alveg skýrt og umbúðalaust, auðvitað hótun gagnvart þeim sem hér eiga að greiða atkvæði og ef um það myndaðist meiri hluti að fella 11. gr. út þá er verið að hóta því að beita 51. gr. Þetta er auðvitað ekkert annað en hótun.