Atvinnuleysistryggingar

175. fundur
Föstudaginn 07. maí 1993, kl. 21:21:51 (8264)

     Frsm. meiri hluta heilbr.- og trn. (Sigbjörn Gunnarsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Að sjálfsögðu var ekki um neina hótun að ræða. Það er hins vegar verið að benda á að sé farið að þeim lögum sem í gildi eru þá sé það hugsanlegt. Ég hef engin efni til að hóta einu eða neinu, ég túlka ekki lögin. En það er alveg ljóst að sá möguleiki er fyrir hendi og tillögur meiri hlutans um breytingar á 11. gr. eru einmitt til komnar til þess að tryggja hag öryrkja og aldraðra eins og ég hef áður sagt.