Svavar Gestsson :
    Virðulegi forseti. Það er misskilningur hjá hv. 4. þm. Norðurl. v. að þessi tillaga komi ekki til atkvæða. Hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson hefur gert tillögu alþýðuflokksmannanna að sinni og flutt hana sem

brtt. við frv. um Húsnæðisstofnun ríkisins þannig að þessi tillaga þeirra alþýðuflokksmannanna mun koma til atkvæða væntanlega hér á eftir á þskj. 1218. Þá gefst þeim kostur á því að sýna í verki, þó ekki sé í umræðum, hvort þeir vilja fylgja sinni eigin tillögu.