Svavar Gestsson :
Virðulegur forseti. Mér finnst það svo sem engin frétt þó hæstv. menntmrh. sé á móti því að þeir aðilar sem aðallega hljóta að gera sig gildandi á sviði þessa sjóðs megi ekki koma nálægt tilnefningum í stjórnina,
þannig hefur verið að hlutunum staðið. Það hefur ekki verið neinn áhugi á samvinnu við fagaðila af hálfu þessarar ríkisstjórnar í menningarmálum og það er kannski von. Það er verið að leggja á bókaskatt núna næstu daga eða næstu vikur eins og menn þekkja. Stuðningur ríkisins við íslenska menningu verður minni á þessu ári en nokkru sinni um langt árabil vegna þess að verið er að leggja á bókaskatt. Verulegur hluti þess stuðnings sem veittur er íslenskri menningu á fjárlögum verður þannig tekinn af henni aftur með bókaskatti eftir nokkra mánuði. Menningarstefna þessarar ríkisstjórnar er þannig að það kemur mér ekkert á óvart þó hæstv. menntmrh. sé á móti þessari tillögu.