Hollustuhættir og heilbrigðiseftirlit

176. fundur
Laugardaginn 08. maí 1993, kl. 11:26:13 (8323)

     Frsm. heilbr.- og trn. (Sigbjörn Gunnarsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti heilbr.- og trn. um frv. til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, nr. 81/1988, með síðari breytingum.
    Nefndin hefur fjallað um málið og fékk hún umsagnir frá Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar, Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins og VSÍ.
    Með frumvarpi þessu er ætlunin að íslensk fyrirtæki, sem hafa starfsstöð innan varnarsvæðisins, skuli greiða gjöld til heilbrigðiseftirlits Suðurnesja í samræmi við það sem tíðkast á starfssvæði þess utan varnarsvæðisins. Til þessa hefur Flugmálastjórn greitt þann hluta gjalda sem ella hefðu komið í hlut eftirlitsskyldrar starfsemi með íslenskum fyrirtækjum innan varnarsvæðisins samkvæmt lögum um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, nr. 81/1988. Nefndinni þykir rétt að sömu lög gildi innan og utan varnarsvæðisins hvað þetta varðar.
    Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins.
    Fjarstaddar afgreiðslu málsins voru Þuríður Pálsdóttir og Sigríður A. Þórðardóttir.
    Undir þetta rita Sigbjörn Gunnarsson, Margrét Frímannsdóttir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Sólveig Pétursdóttir, Lára Margrét Ragnarsdóttir, Finnur Ingólfsson með fyrirvara og Ingibjörg Pálmadóttir með fyrirvara.
    Ég legg til að málinu verði vísað til 3. umr.