Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
Forseti verður að upplýsa hv. þm. um að hann hafði ekki veitt því athygli að þingmaðurinn bæði um að veita andsvar. Þingmaðurinn hafði hins vegar tilkynnt að hún mundi ræða þingsköp og boða frávísunartillögu í þessu máli en til þess kom ekki þar sem tillagan var kölluð aftur af öðrum hv. þm.
Forseti lítur svo á og vonar að það sé rétt að um leið og tillaga sem verið er að ræða er kölluð aftur sé hún ekki á dagskrá lengur og ekkert um að ræða. Þess vegna tók forseti hana af dagskrá enda féllu þeir hv. þm. sem höfðu verið á mælendaskrá frá orðinu. Ég skal hins vegar láta athuga hvort hér sé rangt að farið og mun þá skýra frá því ef svo er. Þó hygg ég að það sé ekki.