Afturköllun máls

176. fundur
Laugardaginn 08. maí 1993, kl. 11:51:40 (8329)

     Kristín Einarsdóttir :
    Frú forseti. Ég þakka forseta fyrir að hafa athugað þetta mál. En það var fyrst og fremst vegna þess að ég hafði beðið um andsvar sem ég mótmælti að málið væri tekið af dagskrá, ekki að ég efaðist um að forseti gæti úrskurðað hvenær sem væri að hætta umræðunni ef þess hefði verið óskað af flm. Það er alveg tvennt ólíkt. En það var fyrst og fremst vegna þess að ég tel að ræðu sé ekki lokið fyrr en andsvörum sé lokið að ég kom þessum athugasemdum á framfæri.