Sveitarstjórnarlög

176. fundur
Laugardaginn 08. maí 1993, kl. 15:11:58 (8367)

     Kristinn H. Gunnarsson :
    Virðulegi forseti. Ég hef varpað fram fyrirspurnum til hæstv. félmrh. í þessari umræðu og enn fremur hefur hv. 2. þm. Vestf. lagt fyrirspurnir fyrir ráðherrann. Ég vek athygli á því að hæstv. ráðherra hefur ekki virt menn svars, en ég vænti þess að því megi treysta að ráðherrann svari því við 3. umr. sem hún

getur ekki svarað nú.