Ingibjörg Pálmadóttir
:
Virðulegi forseti. Með þessu frv. er verið að auka rétt sjálfstætt starfandi fólks sem missir vinnuna og það er sérstök réttlætiskrafa en í þessari 11. gr. frv. leynist vondur hortittur því hér er lagt til að skerða bætur elli- og örorkulífeyrisþega um allt að 10 þús. kr. Hér er ekki viðurkenndur sá mikli umframkostnaður sem af því hlýst að vera fatlaður. Hér er verið að koma aftan að ellilífeyrisþegum. Ég segi því já við því að þessi grein falli niður.