Framleiðsla og sala á búvörum

176. fundur
Laugardaginn 08. maí 1993, kl. 18:18:42 (8400)

     Finnur Ingólfsson (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Út af ræðu hv. 9. þm. Reykv. þá vil ég upplýsa að ég hef óskað eftir því við forseta þingsins að umræða um þetta mál fari fram síðar í dag. Ég hef einnig óskað eftir því við hæstv. menntmrh. að hann svari spurningum varðandi þetta mál en jafnframt láta þess getið að forseti kanni hvort ekki sé hægt að koma þessu fyrir þó að tími sé þröngur, þegar hér þarf að ljúka þingstörfum. En ég hef óskað eftir því við hæstv. forseta að þetta verði hægt.