Steingrímur J. Sigfússon :
Hæstv. forseti. Í raun var kjarni málsins settur fram í einni stuttri spurningu áðan og það eru aðeins örfá atriði sem ég bæti við og með tilliti til aðstæðna mun ég ekki hafa ræðu mína langa. En ég ætla gjarnan að fá að leggja eina spurningu fyrir hæstv. forsrh., verkstjórann í þessari ríkisstjórn. Ef hægt væri, hæstv. forseti, að óska eftir því að hæstv. forsrh. kæmi í salinn þá er það ein örstutt spurning til hans sem ég mun koma með í lokin þegar hann er mættur.
Margt mætti segja um þátt landbúnaðarins í þessari blessaðri samningagerð og grautargerð allri sem tengist Evrópsku efnahagssvæði og er nauðsynlegt að fara yfir þá sögu við betra tækifæri. Þar á meðal að rekja lið fyrir lið og með dagsetningum hvernig það kom á dagskrá að landbúnaðarmál yrðu yfir höfuð hluti af eða í tengslum við þessa samningagerð, en eins og kunnugt er var það ekki ætlunin í upphafi og ekki lengst af. Undir lokin létu EFTA-ríkin undan kröfu Evrópubandalagsins fyrir hönd Suðurríkjanna í því bandalagi að fá einhverja rýmkum á innflutningsréttindum til hinna velmegandi EFTA-landa til að bæta sinn hlut á einhvern hátt í þessari samningagerð.
Enginn vafi er á því að einhver hluti fórnarkostnaðarins og verulegur hluti fórnarkostnaðarins af þessari samningagerð sem að okkur Íslendingum snýr er greiddur af landbúnaði. Um það deilir enginn. Oftar en einu sinni má segja, því miður, að hagsmunir landbúnaðarins hafa verið seldir fyrir ímyndaða eða e.t.v. að einhverju leyti raunverulega ávinninga annars staðar.
Við alþýðubandalagsmenn lýsum fullri ábyrgð á hendur hæstv. ríkisstjórn og þeim sem ætla að styðja þennan EES-samning hvað þetta atriði málsins snertir. Það hefur komið skýrt fram og er undirstrikað í nál. minni hluta landbn. Á hinn bóginn er ljóst að úr því sem komið er er sá hlutur skástur að ganga sem allra tryggilegast frá meðferð þessara mála hér innan lands, þeim þáttum sem eru í okkar valdi, og um það snýst þetta mál sem hér er á dagskrá sérstaklega. Í því sambandi er enginn vafi á því að tillaga meiri hluta landbn. er til bóta, styrkir stjórnsýslulega og framkvæmdarvaldslega stöðu landbrn. í þessu sambandi og þess vegna munum við styðja hana. Það er að vísu svo, og fyrir liggja lögfræðileg álit um það, að landbrn. fer með forræði innflutningsmála á búvörum og samkvæmt lögfræðilegu áliti, sem sjálfsagt eru til fleiri en eitt, þá hefur það verið skilgreint þannig, að best ég veit, að þar undir skulu falla allar landbúnaðarvörur sem teljast búvörur í skilningi búvörulaga. Sé svo að einhver deila sé uppi um þetta forræði málsins þá er nauðsynlegt að eyða henni. Það er gert að mínu mati með nokkuð afdráttarlausum hætti í þeim lagatexta sem hér liggur fyrir okkur. Ég vil því til viðbótar, til þess að taka enn frekar af öll tvímæli, spyrja hæstv. forsrh., sem eins og kunnugt er fer með þau mál sem lúta að verkaskiptingu milli ráðuneyta í Stjórnarráðinu og fer með það vald samkvæmt lögum að skera úr um ágreining sem verður milli ráðuneyta um verkefni og valdsvið: Er hann tilbúinn til að koma hér og staðfesta að það sé hans skilningur og hans stefna og það muni gilda í hans ráðuneyti meðan hann situr, að landbrn. fari með allt forræði innflutnings á landbúnaðarvörum? Ég mun láta mér nægja skýrt svar hæstv. forsrh. í því efni og taka gott og gilt að hans orð munu þá standa á meðan hann fer með forustu fyrir Stjórnarráði Íslands. Það er mjög mikilvægt ef einhverjar deilur, ef einhver meiningarmunur kynni að verða uppi af einhverjum ástæðum í tengslum við þessi mál að fyrir liggi afdráttarlaust hver sé stefna hæstv. forsrh. og hvaða viðhorf muni ríkja í Stjórnarráðinu meðan hann fer þar með húsbóndavald.