Forsætisráðherra (Davíð Oddsson)
:
Hæstv. forseti. Ef þetta mál verður ekki afgreitt endanlega á þinginu, sem ég skal ekkert um segja, þá er það ljóst í mínum huga að forræðið í þessum efnum hefur ekki breyst frá því sem það hefur verið. Það er alveg ljóst í mínum huga að ef við ætlum að fylgja eftir samningnum um hið Evrópska efnahagssvæði hvað þetta varðar þá þarf lagasetning af þessu tagi að koma til, hvort sem það er nú eða á haustdögum.