Frestun á fundum Alþingis

176. fundur
Laugardaginn 08. maí 1993, kl. 20:30:28 (8443)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkvæmt 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Tillagan er svohljóðandi:
    ,,Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 7. maí 1993 eða síðar, ef nauðsyn krefur, og standi sú frestun til septemberloka.``
    Tillagan skýrir sig sjálf.