Frestun á fundum Alþingis

176. fundur
Laugardaginn 08. maí 1993, kl. 20:45:51 (8450)

     Ingibjörg Pálmadóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég tel að hérna sé um misskilning að ræða. Við vorum ekki að semja um þingfrestun. Hv. formaður þingflokks Sjálfstfl. sagði áðan að hér væru hlutir óðum að skýrast og þá fyndist mér það rétt ef hlutir eru hér að skýrast að menn töluðu saman því okkur er ekki ljóst hvaða hlutir eru að skýrast.