Steingrímur J. Sigfússon
:
Hæstv. forseti. Hér sýnast mér mjög óvenjulegir atburðir vera að gerast. Hér er lokið umræðum um allmörg mál sem lýst hefur verið yfir að eigi að hljóta afgreiðslu á þessu þingi og jafnvel lögð mikil áhersla á sum þeirra eins og kunnugt er. Ég spyr því hæstv. forseta hvað valdi því að ekki sé gengið til atkvæða og atkvæðagreiðsla að lokinni 2. umr. um þessi mál fari fram hér á þessum fundi, þannig að þegar settur verður nýr fundur og nýrri dagskrá útbýtt þá megi þessi mál koma fyrir til 3. umr., ef leyft verður. Mér sýnist að ef svo sé ekki þá kosti það enn frekari fundahöld hér en ella og það er best að tala alveg tæpitungulaust um það, hæstv. forseti. Er meiningin að slíta þessum fundi án þess að atkvæðagreiðsla fari fram til að mynda um 25. dagskrármálið? Og hvaða skilaboð felast þá í því til fundarmanna? ( Gripið fram í: Það er búið að taka það af dagskrá.) Nei það er ekki búið að taka það af dagskrá, hv. frammíkallandi, það voru tekin af dagskrá önnur mál en þau sem útrædd eru. Ég vil þess vegna eindregið óska eftir því að forseti svari þessu áður en fundinum er slitið og reyndar meira til, að atkvæðagreiðslur fari fram um þessi mál.