Framhald þingfundar

176. fundur
Laugardaginn 08. maí 1993, kl. 21:24:49 (8460)

     Jón Helgason :
    Hæstv. forseti. Ég bað um orðið um gæslu þingskapa þegar hæstv. forseti sagði: ,,Fleira liggur þá ekki fyrir þessum fundi.`` En þá var eftir inni á dagskránni, 25., 26., 28., 31., 34., 35. og 37. mál, því þau hafa ekki verið tekin út af dagskrá. Umræðu var lokið en atkvæðagreiðslu frestað.

    Ég get tekið undir það sem hv. 4. þm. Norðurl. e. sagði að það er mjög óvenjulegt að slíta fundi án þess að mál séu tekin út af dagskrá áður.