Sveitarstjórnarlög

177. fundur
Laugardaginn 08. maí 1993, kl. 23:25:21 (8488)


     Kristinn H. Gunnarsson :
    Hæstv. forseti. Við 2. umr. þessa máls beindi ég nokkrum fyrirspurnum til félmrh. og hafði hugsað mér að ræða málið frekar að loknum svörum ráðherrans. Nú læt ég ráðherra það eftir að ákvarða hvort hann lætur svo lítið að svara fyrirspurnum þingmanna en ég hyggst ekki eiga frekari orðastað við ráðherrann í ljósi þeirra atburða sem orðið hafa hér í kvöld þegar þingræðið hefur verið fótumtroðið með ofbeldi einræðisins í þeim tilgangi að verja ríkisstjórnina falli.