Björn Bjarnason (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég vil aðeins í tilefni af þessu segja að ég get ekki sett mig í þau spor sem hv. 7. þm. Reykv. stendur hér í og segir að ef hann hefði áfram verið forsrh., þá hefði hann beitt sér fyrir stjórnarskrárbreytingu. Ég get ekki staðið í þeim sporum. Ég get hins vegar staðið í þeim sporum og lesið úr skýrslu sem ríkisstjórn hans gaf út ( Gripið fram í: Nei.) þar sem hann telur að það hafi ekki þurft að breyta stjórnarskránni. ( Gripið fram í: Það er rangt.) Og á þeim tíma var talað um að EES-dómstóllinn hefði miklu meira vald heldur en sá EFTA-dómstóll sem við erum nú að ræða um (Gripið fram í.) og hann hafi jafnvel átt að hafa vald til þess að gefa bindandi forúrskurði sem hefur verið fellt á brott og ýmsir sérfræðingar töldu á þeim tíma að væri það atriði varðandi þetta sem helst varðaði íslensku stjórnarskrána. Engu að síður er hér skýrsla úr forsætisráðherratíð hv. 7. þm. Reykn. sem segir að það hefði ekki þurft að breyta stjórnarskránni. En ég get náttúrlega ekki staðið í þeim sporum að velta því fyrir mér hvað hv. þm. hefði gert ef hann hefði fengið styrk hér á Alþingi til þess að gegna áfram störfum forsrh. Það getur kannski enginn sagt um en mér finnst að þær kollsteypur sem hann og hv. formaður Alþb. hafa tekið í þessu máli séu pólitískar kollsteypur sem byggjast ekki að neinu leyti á virðingu fyrir stjórnarskránni.