Evrópskt efnahagssvæði

7. fundur
Þriðjudaginn 25. ágúst 1992, kl. 16:24:12 (54)


     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Að gefnu tilefni vil ég taka fram að ég upplýsti hv. þm. um það áðan að umræðunni um andsvör væri lokið. Nú hafa tveir hv. þm. óskað eftir því að bera af sér sakir og það hefur verið leyft. Nú hefur hv. 8. þm. Reykn. aftur beðið um orðið til þess að bera af sér sakir og mun ég verða við beiðni hans, en vil ítreka að umræður um andsvör fara fram skv. 56. gr. en ekki samkvæmt þingsköpum um að bera af sér sakir.