Evrópskt efnahagssvæði

7. fundur
Þriðjudaginn 25. ágúst 1992, kl. 16:26:02 (56)


     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (um þingsköp) :
    Herra forseti. Út af þessari beiðni um að gera þetta sem allra fyrst, þá get ég upplýst það að skýrsla þessi var rædd sem handrit í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar og þar er bókað að málið hafi verið ítarlega rætt mánuði áður en málið er lagt fyrir Alþingi.