Stjórnarskipunarlög

8. fundur
Miðvikudaginn 26. ágúst 1992, kl. 15:13:32 (83)


     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég get einungis endurtekið þegar ég kem í þennan ræðustól það sem ég sagði áðan að eftirlitsstofnunin og hlutverk hennar var þegar allskýrt mótað þegar þessi skýrsla var gefin. Þess vegna hefði þeim ráðherrum sem létu sig málið varða í fyrri ríkisstjórn átt að vera fullkunnugt um það.