Svavar Gestsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir þessi svör. Ég tel þau vera góð og skil vel að þau skuli ekki ná mikið lengra á þessu stigi málsins. Ég tel mjög mikilvægt að forsrn. taki málið í sínar hendur. Það hefur komið í ljós að það er venjan og eðlilegt að forsrn. taki á málum af þessu tagi en að utanrrn. sé ekki að vasast með þau eins og hvert annað fagráðuneyti. Ég tel því æskilegt að á því verði sérstaklega tekið, einkum þeim þætti sem lýtur að stjórnskipun Evrópubandalagsins og að forsrn. sinni þessu máli sérstaklega, jafnframt því sem Alþingi Íslendinga hlýtur að sjálfsögðu, samkvæmt þingsköpum, að fjalla um það í sérstakri þingnefnd.