Stjórnarskipunarlög

9. fundur
Fimmtudaginn 27. ágúst 1992, kl. 17:35:24 (135)


     Páll Pétursson (andsvar) :
    Frú forseti. Í þingmannahópi Norðurl. v. er að vísu mikill sundmaður einn. En með því að loka augunum og stinga sér í það sem menn ekki vita hvað er, það er ekki neinn heiður í Norðurl. v.
    Þarfir þjóðfélagsins réttlæta það ekki að mínu mati að umgangast stjórnarskrána með léttúð. Og ég mun óhræddur halda því fram jafnvel þótt hæstv. viðskrh. þyki það flækja málið að vera að tala um stjórnarskrá.