Flm. (Steingrímur Hermannsson)
(andsvar)
:
Hv. þm. hefur endurtekið það nokkuð oft hér í ræðustól að ekki sé þörf á að breyta stjórnarskránni. Mig langar til að spyrja hv. þm. hvort honum þótti ekki fróðlegt að hlusta á Björn Þ. Guðmundsson prófessor á fundinum hjá okkur á föstudaginn og hvort það breytti í engu hans skoðun á málinu. Hefur hv. þm. farið yfir það sem ég rakti áðan, eftir Max Sørensen, danska prófessorinn og skoðað hvernig sá þekkti og frægi fræðimaður leit á dönsku stjórnarskrána áður en henni var breytt, þegar hún var sem sagt eins og stjórnarskráin okkar núna? Er það virkilega svo að þetta hafi ekki minnstu áhrif á svo skarpan og gegnan mann eins og hv. þm. er? Það þykir mér ótrúlegt. Þá hlýtur að vera eitthvað annað sem bindur hv. þm. við að það megi ekki breyta stjórnarskránni.
Ég rakti áðan að málið var alls ekki komið á það stig, þegar síðasta ríkisstjórn fór frá, að það þyrfti að taka afstöðu til breytinga á stjórnarskránni. Okkur var ljóst að forúrskurðir fengju ekki staðist gagnvart stjórnarskránni. En forúrskurðir, eins og ég rakti áðan, eru minnsti hluti þessa máls í raun og veru því þeir eru undir dómstólum viðkomandi ríkis komnir, þ.e. ef dómstóllinn biður um þá yrði að breyta stjórnarskránni.
Málið er núna komið á lokastig. Nú liggur það fyrir í heild sinni, upplýst að um valdframsal er að ræða --- það upplýsa fjórmenningarnir, það upplýsa margir, margir fleiri, og slíkt valdaafsal má að okkar mati alls ekki eiga sér stað nema stjórnarskránni verði breytt.