Evrópskt efnahagssvæði

11. fundur
Þriðjudaginn 01. september 1992, kl. 18:10:46 (190)

     Björn Bjarnason (andsvar) :

    Virðulegi forseti. Þar sem hv. síðasti ræðumaður kvaðst hafa fylgst náið með umræðum í síðustu viku ætti hann að vita að hv. þm. Steingrímur Hermannsson, forsrh. í þeirri stjórn þar sem hann var landbrh., gat þess sérstaklega í sinni ræðu að þessi meðferð fyrrv. landbrh. hefði verið ámælisverð.