Árni Johnsen
:
Virðulegi forseti. Um 15 ára skeið hefur orðið mikil aukning á tegund glæpa sem tengjast fíkniefnum. Um sex ára skeið hefur vantað fjármagn til lögreglustarfsemi í Reykjavík að sögn lögreglustjóra og hefur athyglin beinst sérstaklega að fíkniefnadeild lögreglunnar sem þó hefur notið nokkurrar sérstöðu innan þess embættis.
Heimur fíkniefnanna er harður, heimur sem er lítt kunnur á Íslandi og við uppljóstrun á starfsemi, sem þar á sér stað, þarf að beita öðrum vinnubrögðum og kostnaðarsamari en hingað til hafa tíðkast á Íslandi. Ég vil taka undir það sem málshefjandi sagði í þessu máli, það þarf að styrkja grunninn í baráttu gegn fíkniefnum á allan hátt á Íslandi og það kostar peninga. Það þarf að styrkja stöðu fíkniefnadeildarinnar, annaðhvort innan lögreglunnar, gera hana vigtarmeiri þar og sjálfstæðari, eða innan starfsvettvangs Rannsóknarlögreglu ríkisins. Það er um tvennt að ræða í þeim efnum. Ég tel óeðlilegt að skapa sjálfstæða fíkniefnalögreglu en það þarf að auka hana með tryggu landsumboði.
Það er jafnframt ljóst að starfsmenn fíkniefnalögreglu hafa á undanförnum mánuðum unnið kauplaust við uppljóstrun mála. Má þar nefna kókaínmálið frá síðasta sumri. Það liggur fyrir. Það á auðvitað ekki að vera þannig. En menn sem vinna af áhuga á sínu starfi og sjá fyrir endann á hlutum hafa lagt á sig erfiði umfram það sem til var ætlast þegar peningarnir voru uppurnir.
Ég vil vekja athygli á því og lýsa ánægju minni með að formaður fjárln., hv. þm. Karl Steinar Guðnason, lýsti því yfir í fréttum fyrir fáeinum dögum að fíkniefnamál og styrking þeirra væri til sérstakrar umræðu og umfjöllunar í fjárln. Ég vil jafnframt lýsa yfir ánægju með ummæli hæstv. dómsmrh. um að verið sé að vinna að nýjum og breyttum vinnubrögðum í sambandi við baráttuna gegn þeim vágesti sem fíkniefni eru.