Evrópskt efnahagssvæði

11. fundur
Þriðjudaginn 01. september 1992, kl. 20:48:06 (207)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti hafði upplýst hv. 9. þm. Reykn., sem er næstur á mælendaskrá og var reyndar kominn hér í stólinn þegar fundi var frestað fyrir nokkrum mínútum, um að sá ráðherra sem hún hafði óskað eftir að ræða sérstaklega við, þ.e. hæstv. sjútvrh., væri á leiðinni frá Selfossi. Hann verður væntanlega kominn innan ekki langs tíma. Hæstv. utanrrh., sem hefur forsvar fyrir þessu máli, er hér á fundinum. Forseti telur að það ætti að vera hægt að hefja þessa umræðu á þeim forsendum að hæstv. sjútvrh. kemur innan stundar og hæstv. utanrrh. er hér mættur.