Geir H. Haarde
:
Virðulegi forseti. Ég verð að segja að mér finnst það nokkuð miður ef þingfundir eiga nú að fara að hefjast með þeim hætti sem svo oft var á síðasta þingi með því að langur tími fari í umræður um gæslu þingskapa.
Ég tel að hér hafi ekkert það komið fram í ræðum manna um gæslu þingskapa sem ekki hefði verið hægt að taka upp og leysa á fundum utan þessa salar, annaðhvort á vettvangi þingflokksformanna eða forsætisnefndar.
Ég vil leyfa mér að gera athugasemd við orðalag hjá hv. 1. þm. Norðurl. v. sem hér kom upp áðan og gerði athugasemd við orðalag forseta. Vitanlega er það rétt hjá honum að þetta er reglulegt þing en vitanlega er það líka ljóst að það var boðað á þessum tíma vegna samningsins um EES og ef ekki væri fyrir hann þá væri hv. þm. Páll Pétursson væntanlega enn norður í landi á búi sínu að ganga frá sínum heyfeng eða undirbúa réttir.