Evrópskt efnahagssvæði

13. fundur
Fimmtudaginn 03. september 1992, kl. 15:31:28 (273)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Mér finnst spurningin, sem til mín var beint, ekki í beinum tengslum við umræðuefnið. Ég vil aðeins svara því til að ég tel að ef þetta mál er vandamál hefði flokkur hv. þm. átt að hugsa það rækilega áður en Atvinnutryggingarsjóðurinn var stofnaður á sínum tíma en það er margfalt stærra mál í þessum efnum en þetta sem hér hefur verið rætt um.