Forsætisráðherra (Davíð Oddsson)
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Þessi ræða hv. þm. um þingsköpin var stórfurðuleg og tók honum sjálfum fram þegar hann fór að gera athugasemd við það að ég hefði vikið að þessu máli um stjórnarskrármálið sem hann hafði rætt undir öðrum lið. Það var reyndar þannig að í þeim ræðum sem hann hefur flutt um það frv. sem flokkur hans er flutningsaðili að, þá vék hann aldrei eða nánast aldrei að frv. sjálfu heldur ræddi allt annað, allt mögulegt annað en það frv. Það tók langdrýgstan tíma að ræða um skoðanakönnun sem hann taldi að utanrrh. hefði gert í hálfgerðu óleyfi. Þetta var afskaplega sérkennilegt hjá þingmanninum. Og ég vek athygli á því að í ræðu hans sjálfs um hið Evrópska efnahagssvæði varði hann drýgstum hluta af sínum tíma til þess að fjalla um stjórnarskrármálið en ekki efnislega um hið Evrópska efnahagssvæði. Þingmaðurinn ætti bara að lesa sína ræðu áður en hann kemur með slíka stórfurðulega hluti hér í umræðum um þingsköp.