Forsætisráðherra (Davíð Oddsson)
(andsvar)
:
Herra forseti. Mér þætti mikilvægt að fá það upplýst, bæði fyrir þing og þjóð, hvort hv. þm. telur núna að sé rétt að fella gengið og hvort það sé lækning núna og hve mikil gengislækkunin eigi að vera. Ég sé engar tölur sem benda til þess að gengislækkun eða gengisfelling mundi breyta stöðunni til batnaðar nema síður væri.
Við vitum að samningarnir í þessu landi, sem voru hógværir samningar, eru tengdir þeirri bindingu einnig að gengið standist. Það var stærsta fyrirheitið sem ríkisstjórnin gaf launþegasamtökunum og við það verður að sjálfsögðu staðið. Óháð því fyrirheiti, sem menn vilja auðvitað standa við, eru engar efnahagslegar forsendur sem knýja á um lækkun gengis. Raungengismælingin er slík.