Forsætisráðherra (Davíð Oddsson)
(andsvar)
:
Herra forseti. Mér þykir fyrir því ef þingmaðurinn er furðu lostinn og hefur orðið það af mínum völdum. Þingmaðurinn sagði að skerðing á þorskafla væri ekki komin fram. Ég veit ekki hvar þessi ágæti þingmaður hefur verið. Ég nefndi það sérstaklega að þegar menn voru að tala um atvinnuástandið fyrr voru menn að veiða 400 þús. tonn af þorski. Síðan hefur aflinn minnkað. Á síðasta ári var hann skorinn úr 310 þús. tonnum niður í 265 þús. tonn og núna sem viðbótarákvörðun hefur verið tekin, að fara niður í 205 þús. tonn. Stór hluti þeirrar ákvörðunar hefur þegar komið fram. Og það er einmitt spáin sem menn eru að tala um fyrir næsta ár sem sýnir hina mikla alvöru í sjávarútveginum. Ég skil ekki að hinn furðu lostni þingmaður hafi ekki áttað sig á því að verulegur hluti þessarar þorskskerðingar er þegar kominn fram. Það hefði verið gustuk af einhverjum samherjum þingmannsins að skýra honum frá þessu. Þetta hefur verið mjög ofarlega í fréttum.