Kjaradómur

15. fundur
Þriðjudaginn 08. september 1992, kl. 14:54:38 (369)

     Stefán Guðmundsson (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Hér eru bornar alvarlegar sakir á menn og hæstv. fjmrh. sagði að sá sem gengur hér fyrst fram í þessu máli hafi farið með lygar í ákveðnu máli fyrir örstuttu síðan. Sá sem gekk fyrst fram í þessu máli er sá sem hér stendur og ég bið þess vegna hæstv. fjmrh. að finna orðum sínum stað. Helst vildi ég að hann væri maður til þess að koma hér upp og biðjast afsökunar á orðum sínum, hann væri maður að meiri.