Kjaradómur

15. fundur
Þriðjudaginn 08. september 1992, kl. 15:01:06 (374)


     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Ég vil geta þess að nú hafa verið haldnar 17 ræður í ljósi 55. gr. þingskapa um gæslu þingskapa og ein þar sem hv. þm. hefur verið að bera af sér sakir. Ég hvet hv. þm. til að ljúka þingskapaumræðu eins fljótt og kostur er þannig að umræða um þau mál sem eru á dagskrá geti haldið áfram. En nú hefur hv. 2. þm. Vestf. kvatt sér hljóðs og óskar að ræða þingsköp.