Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Ég vil eindregið gefa hv. þm. tækifæri til að svara þeirri fyrirspurn sem kom frá mér og hefur mikla þýðingu fyrir framhald umræðnanna. Er það skoðun hv. þm. að það hefði átt að setja lög til þess að tryggja að þeir samningar sem gerðir voru á milli aðila vinnumarkaðarins, ríkisins og BSRB giltu fyrir alla? Og ef þau lög átti að setja fyrr áttu þau lög þá að ná ekki einungis til kjaradómsmanna heldur einnig til þeirra sem höfðu lausa samninga? Það má vera að ég hafi misskilið hv. þm. en mér fannst koma fram í máli hans að fjmrn. hefði ekki brugðist nægilega fljótt við og hefði á fyrri stigum málsins átt að setja saman lagafrv. og fá það í gegn. Því spyr ég: Hvert átti að vera efni þeirra laga, því ég held að það sé mikilvægt fyrir framhald umræðunnar.