Fjarvera forsætisráðherra

15. fundur
Þriðjudaginn 08. september 1992, kl. 17:16:52 (408)

     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Herra forseti. Ég þakka hæstv. forseta fyrir það að hér hefur verið upplýst af forsetastóli að forsrh. hafi fjarvistarleyfi. Það hefur að vísu verið gert undir rós en verður þó ekki skilið á annan veg en að hæstv. forsrh. hafi fjarvistarleyfi. Það er eins gott að þjóðin viti það.