Evrópskt efnahagssvæði

16. fundur
Miðvikudaginn 09. september 1992, kl. 22:27:22 (444)



     Ólafur Þ. Þórðarson (um þingsköp) :
    Herra forseti. Það má ekki minna vera en ég þakki hæstv. forsrh. fyrir heiðarlegt svar og ber að virða það þegar ráðherra svarar án þess að snúa út úr fyrir mönnum og án þess að reyna á nokkurn hátt að draga úr upplýsingum. Hitt er svo umhugsunarefni fyrir þingflokk Sjálfstfl. að það hafi ekki staðið til að hafa neina atkvæðagreiðslu í flokknum um jafnstórt mál.