Evrópskt efnahagssvæði

16. fundur
Miðvikudaginn 09. september 1992, kl. 23:43:52 (452)

     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti vill leyfa sér að upplýsa þar sem nú er nokkuð liðið á kvöld, að eins og mælendaskrá er núna eru allar líkur á að þessi umræða standi lengi fram eftir nóttu og forseti telur því ástæðu til að fara þess á leit að hv. þm. reyni sem best þeir mega að þjappa máli sínu saman.