Evrópskt efnahagssvæði

16. fundur
Fimmtudaginn 10. september 1992, kl. 00:00:21 (455)

     Árni R. Árnason (andsvar) :
    Frú forseti. Lokaorð hv. 9. þm. Reykn. eru vissulega rétt í þessu máli sem öðrum. Töfralausnir eru ekki fyrir hendi. En ég vil taka það fram að ég tel samninginn fela í sér möguleika okkar til að ná síðar meiri árangri einmitt í þeim málum sem hún nefndi að skortur væri á að við hefðum náð öllu fram. En við vorum við samningaborð, ekki í dómsal.