Evrópskt efnahagssvæði

16. fundur
Fimmtudaginn 10. september 1992, kl. 01:46:22 (475)

     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Nú verður forseti að geta þess að enn eru þrír hv. þm. eftir sem beðið hafa um andsvör. Einungis eru eftir þrjár mínútur af leyfilegum tíma til andsvara. Forseti gerir nú að tillögu sinni ef enginn mótmælir því að menn fái tækifæri til að veita umbeðin andsvör og hæstv. ráðherra svari þeim öllum í einu. Geta menn sæst á það? Ella verður forseti að skera af lista andsvarsbeiðenda. Því er ekki mótmælt.