Evrópskt efnahagssvæði

16. fundur
Fimmtudaginn 10. september 1992, kl. 02:03:24 (484)


     Jóhann Ársælsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég fór hógværlega fram á það fyrr í kvöld að hæstv. utanrrh. gerði okkur grein fyrir því hvers konar stefnumörkun væri fólgin í frv. til laga um tolla og vörugjöld sem hér liggur fyrir þinginu og er fylgifrv. með þessum samningi. Það hefur hann ekki gert. Ég endurtek það og óska eftir því að fá að vita hvaða stefnumörkun er á bak við það sem kemur fram í því frv. Til viðbótar óska ég eindregið eftir því að hæstv. utanrrh. geri okkur grein fyrir hvernig hann lítur á það að við munum ekki geta stjórnað útflutningi á okkar fiskafurðum með sama hætti og við höfum getað fram að þessu eftir að þessir samningar taka gildi.