Evrópskt efnahagssvæði

16. fundur
Fimmtudaginn 10. september 1992, kl. 02:16:22 (493)

     Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson) (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Fyrir þá hv. þm. sem vilja fá sundurliðaðar töflur yfir tollalækkanir samkvæmt samningnum miðað við útflutningsmagn, t.d. árið 1990, hlut tollflokkunar af þeim tollgreiðslum sem á Íslendinga komu af heildinni, bæði af þeim sem verða tollfrjálsir í upphafi, þeim sem lækka í áföngum um 70% á næstu árum og þá tolla sem eftir yrðu, sem eru yfirleitt svo lágir að þeir eru ekki viðskiptahindrun, þá hafa þessar upplýsingar legið fyrir allan tímann, frá 22. okt. 1991 og eru hér til reiðu.