Virðulegi forseti. Það hefði nú verið skynsamlegra hjá hæstv. utanrrh. að geyma þessa heimastíla sem embættismennirnir hafa sent hann með hingað í ræðustólinn því að hann er greinilega kominn í slíka flækju í þessu máli að það væri vissulega þess virði ef klukkan væri nú ekki orðin 3.30 að fara að elta hann uppi í þessu.
Það stendur nú m.a. í skýrslu hæstv. utanrrh. frá því í mars 1991 að það sé nauðsynlegt að fara að huga að breytingum á stjórnarskrá til þess að taka tillit til þeirra atriða sem hv. þm. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir nefndi áðan. Ég held að hæstv. utanrrh. ætti að minnast þess að hann hefur sjálfur sagt það við þingið í skýrslu sem hann lagði hér fram og er margumrædd í þessum umræðum. Hvernig ætlar hæstv. utanrrh. að orða þá stjórnarskrárbreytingu? Vill hann ekki sýna þinginu það fyrst hann sagði að það væri nauðsynlegt? Síðan talar hann eins og þetta sé eitthvað nýtt fyrir hans eyru. Við höfum setið saman í tveimur nefndum nokkuð lengi, ég og hæstv. utanrrh. Önnur var staðarvalsnefndin sem skilaði góðri skýrslu. Hin var nefnd um endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins þar sem við sátum í nokkur ár undir forsæti Gunnars Thoroddsens forsrh. og doktors og prófessors í lögum. Þar voru þessi vandamál ítarlega rædd, hæstv.
utanrrh., og það kemur fram í þeirri skýrslu sem lögð var fyrir þingið 1983 fyrir tæpum 10 árum síðan. Þar voru m.a. fluttar brtt. við stjórnarskrána sem hv. þm. Ragnar Arnalds og ég stóðum að og á fjölmörgum fundum með dr. Gunnari Thoroddsen og öðrum samnefndarmönnum okkar ræddum við þessi vandamál. En að koma hér eins og hæstv. utanrrh. gerir eins og einhver hvítvoðungur inn í þessa umræðu með heimastíla úr ráðuneytinu sem hann varla var búinn að lesa sjálfur milli klukkan 3 og 4 um nótt er auðvitað engan veginn samboðið þessari umræðu.