Jarðhitaleit í Austur-Skaftafellssýslu

17. fundur
Fimmtudaginn 10. september 1992, kl. 10:30:02 (522)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti vill minna á nýjar reglur þingskapa um ræðutíma á fyrirspurnafundum. Þeim hefur verið breytt þannig að fyrirspyrjandi hefur þrjár mínútur í fyrri umferð og tvær í hinni síðari en ráðherra fimm mínútur í hinni fyrri og tvær í hinni síðari.